Nýtt bloggRagna Fanney Gunnarsdóttir

ég er komin með nýja síðu
http://raggafg.blog.is/blog/ofurgellan/

Málinu reddađRagna Fanney Gunnarsdóttir

Þá er það komið á hreint að mín elskulega móðir ætlar að passa fyrir okkur næstu helgi sem þýðir að Ragga er að fara á ball.....YYYEEESSS....
með Magna og félögum

( bara fyrir Magna )


ef að það gengur ekki eftir þá er bara að senda þá með póstinum til Guðbjargar Kr.( sjá comment á fyrra blogg )

Þá er bara að dusta rykið af glansgallanum, fægja ballskóna og fara í ríkið en inn í þá verslun hef ég ekki komið að versla fyrir sjálfa mig í LANGAN TÍMA ...já ég veit hvað ég lifi ekki spennandi lífi...alllavega ekki djammlega séð....





ég er að fara að vinna í kvöld
Ragga segir bless í bili

Djamm pćlingar....Ragna Fanney Gunnarsdóttir

Magni og Á móti sól verða með stórdansleik í íþróttahúsinu á Sauðárkróki
 föstudaginn 20. október kl. 23:00.




Okkur hjónakornunum langar til að fara...Það  er bara að redda pössun
ef að einhver vill taka það að sér að passa þetta kvöld vinsamlegast gefi sig fram sem fyrst

oG ég skora á Þórunni og skagga gellurnar að mæta....



ég er að fara að vinna á eftir

Ragga kveður....





í skólanum. í skólanum er skemmtilegt ađ vera....Ragna Fanney Gunnarsdóttir

Well well

gellan er mætt í skólann og auðvitað byrjuð að blogga

Elsku KOLLA BESTA FRÆNKA á afmæli í dag
TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN elskan mín.....

Við fengum 8,5 fyrir fyrsta verkefnið okkar sem að var ferðin í litla skóg...ekki slæmt....

Það er bara ekkert í fréttum

Ragga segir bless

Afmćli og skírnRagna Fanney Gunnarsdóttir

Well well gott fólk
"Litli" bróðir minn er 21 árs í dag..Til hamingju brói..



Fórum áðan í veislu a'la mamma í tilefni afmælissins....það var kærkomið vegna uppsafnaðs hungurs eftir að hjálpa Söru í dag....

Dagga vinkona skírði í dag og fékk prinsinn nafnið Natan Ingi...Til hamingju Dagga mín






Stebbi brói og Ásta hans heittelskaða ætla að kíkja í kvöld og ætlum við að kíkja í pottinn og fá okkur eitthvað svalandi að drekka...ummm...

RÚMIÐ okkar er KOMIÐ..það er alveg geggjað og okkur hlakkar til að fara að sofa í Kvöld


Lag dagsins: Bóbó bangsi...


bless í bili

Ragga segir Góða nótt

í fréttum er ţetta helstRagna Fanney Gunnarsdóttir

Jæja

Leidís and Gjents

Dagurinn fór í að hjálpa Söru Litlu Systu að flytja...maður er pínu þreyttur eftir það

Íbúðin er rosalega flott...Ég gerði Gunnars herbergi rosalega flott og ætla þau mæðgin að sofa þar í nótt ZZZZZZ

Föstudagur til FJÁR er víst sagt þegar maður gistir á föstudegi í nýju húsnæði...  Vonandi að það sé satt nema að sé verið að tala um SAUÐFÉ...það væri nú ekki gott meeeeee......he he

Við gáfum henni rúmið okkar ...það er amerískt af drottningar stærð ( 153cm )og fékk hún lök og rúmteppi líka...





Við erum nefnilega að fá nýtt rúm það er 180 cm breitt og heitir
Elegance

fyrir þá sem vilja skoða mynd af rúminu  geta farið á   sofi.is     í vörur og skoðað það
við fengum það á sirka 100 þúsund kall en það á að kosta 240 þús.  það er ágætis díll.....

Þetta var helst í fréttum


Raggan kveður




Ég er ađeins ađ prufa mig áfram....Ragna Fanney Gunnarsdóttir

Ég er aðeins að prufa mig áfram með útlit síðunnar

endilega kommentið á útlitsbreytinguna

Ragga

Dilana...Ragna Fanney Gunnarsdóttir

Ég og frumburðurinn kíktum í Litla skóg og borðuðum þar hádegismat í blíðskaparveðri, þvílíkt notalegt

Ef að þið vissuð það ekki nú þegar þá megið þið vita að ég er SNILLINGUR
Mér tókst að hnoða saman 2000 orða ritgerð og rúmlega það um Foreldrasamstarf við leikskólann
það eru 8-10 bls. og geri aðrir betur

Ég er svo stolt af litlu systir Möggu vinkonu henni Hrafnhildi.  hún er að fara með DILÖNU úr ROCK STAR til INDLANDS að farða hana, hún sá um förðunina á henni hér á landi og hún bað hana að koma með sér
ég er bara GRÆN af öfund
hér er slóðin á bloggið hennar þar sem að þið getið skoðað myndir af dilönu, magna og öllu þessi dæmi:


http://krummi.skjalfti.is/

jæja

Ragga segir bless bless

Ragna Fanney Gunnarsdóttir

halló

eins og venjulega þá blogga ég bara í skólanum....læra.... læra....eða þannig

en það er svo mikið að gera núna fullt af verkefnum og ritgerðum þannig að ég blogga bara í skólanum

ég er líka ð vinna núna fram á þriðjudag.

Ég er mjög sátt við launin mín fyrir þessi 40 prósent vinnu
ég fékk 84 þúsund útborgað
ekki slæmt....samt búið að draga af mér einhverjar máltíðir og allt hitt draslið sem að er alltaf dregið af manni

Viktor Franklín er alltaf að segja eitthvað nýtt og er ekkert smá duglegur
Ísak Dagur er rosalega duglegu í skólanum og leggur mikinn metnað í lærdóminn

þessi börn eru svo yndisleg....


ÞÚ ERT LÍKLEGA MÓÐIR

...ef þú felur þig inni á baðherbergi til að geta verið ein smástund.
...ef þú hefur verið í trimmgalla alla helgina.
...ef fæturnir á þér festast í klístrinu á eldhúsgólfinu
...og þér er alveg sama.
...ef það er líklegra að þú verðir fyrir eldingu en að þú fáir ótruflaðan 8 tíma svefn.
...ef þú hefur aðeins tíma til að raka annan fótlegginn í einu.
...ef þín skilgreining á góðum degi er að halda fötunum frá sulli og óhreinindum.
...ef þú þværð barninu í framan með munnvatnsbleyttum þumalfingrinum.
...ef þú gerir ósjálfrátt tvöfaldan hnút á allt sem þú hnýtir.
...ef þér finnst góð lyktin af soðnum gulrótum með eplamauki.
...ef þú ert farin að kaupa morgunkorn með sykurpúðum.
...ef þér tekst að setja ólíkar tegundir matvæla á disk, án þess að nokkrar þeirra snertist.
...ef þú vonar að tómatsósa sé grænmeti, af því að það er það eina sem barnið borðar.
...ef þú byrjar alltaf á að skera matinn þinn í litla bita og leyfir öðrum að borða af disknum þínum.
...ef þú segir setningar eins og:
"ekki setja pastað í nefið á þér...!""
...ef þú telur skrautsykursmolana á hverjum kökubita svo allir fái jafnt.
...ef þú velur veitingastaði eftir gæðum barnamatseðilsins og dótinu sem fylgir með.
...ef þú ferð á fætur kl 5:30 á hverjum degi, hefur ekki tíma til að borða (hvað þá að drekka eða fara á klósettið) og samt tekst þér að þyngjast um 5 kíló!
...ef símtölin þín eru sífellt slitin í sundur af setningum eins og:
"Ekki skrifa á vegginn!"
"Ekki nota köttinn fyrir fjall!"
"Nei, skrifborðið á ekki að vera í sófanum!"
"Hættu að toga í hárið á systur þinni"
"Bíddu aðeins á meðan ég næ í þráðlausa símann, ég þarf að skipta á barninu/gefa barninu að borða/ finna barnið!!"
...ef þú nærð að hlaupa í gegnum alla íbúðina (og um leið setja barnið í stólinn sinn, hoppa yfir tvö öryggishlið, velta þremur taukörfum, hrasa um leikfang, hundinn og bolta á ganginum) og svara símanum áður en kviknar á símsvaranum. Um leið hefur þú öðlast réttindi til þáttöku í fjölþraut og átt góða möguleika á að vinna gullið!
..ef þú hefur litlar áhyggjur af bauki og bramli, en fyllist skelfingu ef allt er hljótt.
...ef þú heyrir rödd móður þinnar þegar þú segir: "Nei, ekki þegar þú ert í sparifötunum!"
...ef þú ert hætt að gagnrýna uppeldi móður þinnar á þér og syskinum þínum.
...ef þú ert farin að raula Disney-lög yfir uppvaskinu.
...ef þú færð barnapíu til að komast loksins út með manninum þínum og eyðir svo hálfu kvöldinu í að athuga hvernig gengur heima.
...ef þú segir á hverjum degi: "Ég er ekki rétta manneskjan í þetta starf" en myndir samt ekki vilja skipta um hlutverk við nokkurn annan!

er þetta ekki bara málið

Ragga kveður



Ég er á lífi gott fólkRagna Fanney Gunnarsdóttir

Halló ég er ekkert hætt að blogga það er svo mikið að gera hjá mér eins og venjulega. blikk ....blikk..... 
bara til vitnis um það hvað ég er upptekin þá er ég sko í skólanum akkúrat núna og er að blogga...þvílíkur námshestur....finnst ykkur ekki...he he

Við fjölskyldan fórum í húsbílaferðalag á Akureyri um helgina...Tengdó lánaði okkur nýja fína bílinn...algjör lúxus maður.....

Við fórum í bíó með grísina og gekk það framar okkar björtustu vonum...þetta var nefnilega fyrsta bíó ferð yngsta fjölskyldumeðlimarins og þeir sem þekkja til vita að hann er Mjög SJÁLFSTÆÐUR ef svo má að orði komast...þannig að það var mjög gaman... Við fórum á myndina the Wild með ísl. tali mjög skemmtileg mynd.

jæja verð að fara að læra eitthvað

over and out

Ragga segir BLESS

Ađalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Gćludýriđ mitt



adopt your own virtual pet!


Leikur dagsins